-
Áfangi 7: Fjáröflun, hefjum starfsemi
Þessi áfangi miðar að því að veita innsýn í fjármögnun hins opinbera og einkaaðila sem og viðskiptatækifæri fyrir hugsanlega frumkvöðla. Einnig munu þátttakendur læra um reglugerðar umhverfi fyrirtækja sem og hvernig á að þróa fjárhagslega hagkvæmniáætlun.
5-
Að stofna fyrirtæki í Evrópu og ræða um skattamál, lagalegar forsendur og félagsleg framlögLecture1.1
-
Tækifæri fyrir konur og framleiðsla afurðaLecture1.2
-
Gagnleg aðföng og aðgengi að fjármagni í landinuLecture1.3
-
Að gera fjárhagsáæltunLecture1.4
-
Fjáröflun, hefjum starfsemi – Mat á námsefni 10 questionsFinalQuiz1.1
-
Tækifæri fyrir konur og framleiðsla afurða

Source: rawpixel
Þessi kennslustund fjallar um tækifæri kvenna sem frumkvöðla hvað varðar hugmyndir að nýju fyrirtæki. Þetta geta verið almennar hugmyndir eða hugmyndir byggðar á t.d. handverki sem byggir á búsetu þeirra, sögu viðskipta á þeirra svæði eða öðrum eiginleikum búsvæða þeirra.
Boðið er upp á úrræði sem sýna hvar athafnakonur hefur gengið vel. Einnig verður bent á hvar þátttakendur geta leitað tækifæra til að betur getað sinnt ástríðu sinni til að skapa gildi og ánægju í starfi sínu.
Entrepreneur Magazine[1] heldur því fram að 98% af áhættufé fari til karla, jafnvel þótt konur hafi stofnað til tveggja þriðju hluta fyrirtækja í Evrópu[2], en það er mjög svipað hlutfall og í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir mikið ójafnvægi í fjármögnun áhættufjármagns hafa fleiri alþjóðlegar og þjóðlegar stofnanir komist að því að fyrirtæki stofnað af konum skila meira en tvöfalt meira fyrir hverja evru sem fjárfest er en þau sem stofnuð voru af körlum. Þetta þýðir að fyrirtæki kvenna geta verið mun betri fjárfestingar fyrir fjármálastofnanir.
Stuðningur við kvenkyns frumkvöðla samkvæmt opinberum gögnum
Gögn frá bæði einka- og opinberum rannsóknum sýna meðal annars eftirfarandi staðreyndir[1]:
- Fyrirtæki í eigu kvenna mynda talsvert hærri tekjur en þau í eigu karla.
- Fyrirtæki í eigu kvenna skapa talsver t fleiri störf ein þau í eigu karla.
- Konur eru skilvirkari sem millistjórnendur í fyrirtækjum.
- Konur sem framkvæmdastjórar bæta verulega við frammistöðu fyrirtækja borið saman við menn.
- Konur eru meira hungraðar í vöxt og árangur en menn
Þó rannsóknir sýni að fyrirtæki kvenna hafi mikla kosti umfram karla, þá þarf enn að brúa bilið á milli karla og kvenna. Fjöldi fjölþjóðlegra samtaka hafa rannsakað atvinnurekstur og frumkvöðlastarf kvenna. Norðurlöndin hafa verið í fararbroddi á þessu sviði. Hér eru nokkur dæmi um norrænar rannsóknir:
- Nordic Female Entrepreneurship, rannsókn er í gangi 2020[2].
- Female Entrepreneurship in the Nordics, samanburðarrannsókn 2020[3].
- Nordic Women in Tech and Innovation 2020[4].
- Supporting Women’s Entrepreneurship in the Nordic Counties – Krítisk rannsókna á stefnu þjóðríkja hvað varðar konur og rekstur, 2010[5].
- Studies on women’s entrepreneurship from Nordic counties and beyond, 2013[6].
- Support for women’s entrepreneurship: Norrænt sjónarhorn, 2012[7].
- Supporting Women’s Entrepreneurship in Nordic Sparsely Populated Areas, 2012[8].
- Women Entrepreneurship – Norrænt sjónarhorn, 2007[9].
Það eru til fjölmargar vefsíður sem sýna hvar konur hafa náð árngri í rekstri fyrirtækja. Vefsíðan The Female Entrepreneurs kynnir meðal annars nokkrar árangurssögur.
Tækifæri í uppbyggingu fyrirtækis í heimabyggð.
Það eru til margar mismunandi tegundir frumkvöðlafyrirtækja og það eru margar leiðir til að finna góða hugmynd fyrir slíkt fyrirtæki, jafnvel svæðisbundið. Meðal leiða til að bera kennsl á hentuga viðskiptahugmynd fyrir frumkvöðulinn[1] er:
- Hvað vildi hún alltaf gera
- Leysa vandamál í ákveðinni „hyllu“, sem hún þekkir
- Eru tækifæri í þeirri starfsemi sem hún þegar vinnur í
- Skoða hvað er að ske í samfélaginu
- Hefur frumkvöðullinn sérstaka ástríðu sem hún vill fylgja
- Hverjar eru sterkar hliðar frumkvöðulsins
Tækifærin eru ansi mörg – frumkvöðullinn verður að vita hvernig á að leita að réttu tækifærunum. Meðal atriða hér að ofan er bent á að skoða hvað er að ske í samfélaginu, hver er þróunin. Meðal þess sem hægt er að sjá um árangursrík frumkvöðlafyrirtæki á þessum tímum eru margskonar ný fyrirtæki, sum þeirra eru ekki endilega vel þekkt fyrir aðeins nokkrum árum:
- Persónuleg heilbrigðisþjónusta
- Námskeið og áhugamál
- Bókhald og reikningshald
- Ráðgjöf
- Grafísk hönnun
- Samfélagsmiðlar
- Markaðsmál
- Fjarþjónusta af ýmsu tagi
Til er fjöldi Vefsíða þar sem er að finna viðskiptahugmyndir. Það getur verið hjálplega að þekkja síður eins og HubSpot[2] getur hjálpað til við að finna hugmyndir, þar sem þessar síður bjóða upp á ókeypis hugmyndir og jafnvel einhvern stuðning. Hins vegarþarf stundum að borga fyrir gagnlegar upp

lýsingar.
Eftir að hafa skoðað ýmiss konar áhugaverðar hugmyndir sem frumkvöðullinn vill skoða nánar þarf hún að skipuleggja sig og skrifa viðskiptaáætlun sem inniheldur fjárhagsáætlun.
Hér skal sérstaklega bent á tvær útgáfur frá NMI sem komu út í byrjun janúar 2021.
Frumkvöðlasetur Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands[1] og Nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi á Norðurlöndum[2]
