-
Áfangi 7: Fjáröflun, hefjum starfsemi
Þessi áfangi miðar að því að veita innsýn í fjármögnun hins opinbera og einkaaðila sem og viðskiptatækifæri fyrir hugsanlega frumkvöðla. Einnig munu þátttakendur læra um reglugerðar umhverfi fyrirtækja sem og hvernig á að þróa fjárhagslega hagkvæmniáætlun.
5-
Að stofna fyrirtæki í Evrópu og ræða um skattamál, lagalegar forsendur og félagsleg framlögLecture1.1
-
Tækifæri fyrir konur og framleiðsla afurðaLecture1.2
-
Gagnleg aðföng og aðgengi að fjármagni í landinuLecture1.3
-
Að gera fjárhagsáæltunLecture1.4
-
Fjáröflun, hefjum starfsemi – Mat á námsefni 10 questionsFinalQuiz1.1
-
Gagnleg aðföng og aðgengi að fjármagni í landinu

Fjármögnun og stuðningur í Evrópu[1]
Það eru margskonar sjóðir og stuðningur í ríkjum EES í boði fyrir frumkvöðlafyrirtæki. Til að komast að því hvaða sjóður eða kerfi uppfyllir þarfir frumkvöðulsins og hvaða upplýsingar þarf að fá um stuðning og önnur úrræði, mætti heimsækja síður Start-up Europe Club.
Þá má einnig nota Start-up Europe Partnership vettvanginn til að fá hjálp við að stækka og þróa fyrirtækið.
Ef frumkvöðullin er að leita að því að auka sýnileika fyrirtækisins getur hún skráð verkefnið á Evrópsku fjárfestingarverkefnagáttina. Gáttin gerir einnig kleift að komast í samband við mögulega alþjóðlega fjárfesta.
Sjá líka:
- Gagnvirkt kort: companies funded by the EU via the SME Instrument
- Finna fyrirtæki: access company information in the EU
- Women entrepreneurship gateway
Hvar má finna fjármögnun fyrir innlend verkefni
Innlendur stuðningur við frumkvöðlastarfsemi kvenna er er til þó segja megi að hann er ekki mjög mikill. Frumkvöðlar þurfa að vera opnir fyrir tækifærunum í eigin löndum en eðlilegast er að sækja fé í innlenda sjóði og úrræði til að síðan leita til annarra landa. Fjölþjóðlegur stuðningur kallar venjulega á samstarf fyrirtækja á milli landa.
Á Íslandi eru nokkrir sjóðir og úrræði þar sem frumkvöðlar hafa tækifæri til að sækja um fjárframlög. Sumir smærri sjóðir eru helgaðir frumkvöðlastarfsemi kvenna, eins og meðal annars Atvinnumál kvenna og Svanni skuldatryggingar.
Tækifæri (ISL)
- Tækniþróunarsjóður[1]
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands (starfsemi hætt en síðan opin)[2]
- Matvælasjóður[3]
- Arion banki[4].
Mismunandi tegund fjármögnunar, opinber- eða einka fjármögnun
Fjármögnun frumkvöðlafyrirtækis getur verið mjög flókin. Frumkvöðullinn getur leitað eftir fjármagni ýmist til einkaaðila eða lögaðila. Hún gæti leitað eftir opinberum styrkjum, svo sem frá rannsókna- og nýsköpunarsjóðum. Þessi fjármögnun eru venjulega í samkeppni milli fyrirtækja, stofnana og einstaklinga. Þar eru oft á ferðinni eldri fyrirtækja sem stunda rannsóknir og nýsköpun. Hér er listi yfir ýmsar tegundir fjármögnunar fyrir frumkvöðlafyrirtæki. Þetta eru aðferðir við fjármögnun en ekki fjármögnunaraðilar:
- Stofnandi frumkvöðlafyrirtækis leggur venjulega fram fé, eftir betu getu
- F:in þrjú: fjölskylda, félagi og fífl
- Viðskiptaenglar
- Fjöldafjármögnun, nýlega tilkomið en mikilvægt og mörg dæmi um árangur
- Styrkir af ýmsu tagi svo sem skattaívilnanir, kostnaður vegna RoÞ og fjárfestinga í frumkvöðlafyrirtækjum
- Áhættufjármögnun eða eigið fé
- Skuldsetning eins og bankalán. Ætti aldrei að nota þegar áhætta er mikil
- Seldir viðskiptareikningar, frumkvöðulinn selur afurð, gerir reikning og selur hann. Styttir tíma fyrir að fá fé fyrir afurðina
- Kaupleiga í stað þess að kaupa vélar
- Birgjar geta gefið kaupendum frest á greiðslum fyrir aðföng
Það eru aðrar leiðir til fjármögnunar og frumkvöðullinn er hvattur til að skoða allar fjármögnunarleiðir. Hún verður að huga að áhættunni við aðgerðina og getu til að greiða til baka ef þarf. Ef um er að ræða umsókn um opinbera fjármögnun verður
frumkvöðullinn að leggja í mikla vinnu – umsóknir þarf alltaf að fylla út með mikilli kostgæfni, svo að líklegra sé að opinber styrkur fáist.
Mat á þekkingu og færni
Eftir þessa kennslustund finnst mér þekking mín á “Gagnleg aðföng og aðgenig að fjármagni í landinu” vera…
| Viðmið fyrir sjálfsmat | Umfang sjálfsmats | |||
| Fullkomið | Gott | Fullnægjandi | Mætti vera betra | |
| Að skilja aðföng að fjármögnun | ||||
| Fjármagn frá EES, hinu opingera og frá einkaaðilum | ||||
| Þekking á fjármögnunarleiðum og úrræðum | ||||
| Skilja mismunandi tegund á fjármögnun | ||||

Heimild: Nordic photo free
