-
Áfangi 5: Markaður og sala
Ert þú þekkt fyrir hæfileika þína sem handverkskona og fyrir gæði afurða þinna? Mundu að velgengni afurðanna á markaði fer einnig eftir getu þinni til að ná á réttan markað og að skilja þróun hans. Það er hér sem markaðssetning mun hjálpa þér! Þessi áfangi gerir þér kleift að skilja grundvallarhugtök markaðssetningar, gera einfaldar markaðsrannsóknir skref fyrir skref og skilgreina viðskiptastefnu sem auðveldar að bera kennsl á rétta viðskiptavini fyrir starfsemin. Hér koma í ljós margskonar ókeypis tæki og tól á netinu sem getaorðið að liði.
3-
Grundvallarhugtök markaðssetningar og markaðsrannsóknaLecture1.1
-
Þróun einfaldrar markaðsstefnu um að koma vörunni á markaðLecture1.2
-
Markaður og sala – Mat á námsefni 10 questionsQuiz1.1
-
Grundvallarhugtök markaðssetningar og markaðsrannsókna

Heimild : www.developpementeconomie.courbevoie.fr
Ákvörðunin um hvort fara eigi á markað eða ekki byggir á að frumkvöðull hafir góðan skilningi á markaðnum og hvernig hann þróast. Markaðsrannsóknir eru því mikilvægar enda veita þær eins nákvæma greiningu á markaði og hægt er. Áherslan hér er markaðurinn og margvíslegir þættir hans eins og viðskiptavinir, keppinautar o.s.frv.
Í þessari kennslustund er gerð grein fyrir grundvallarreglum markaðssetningar, við hvað er átt með hugtakinu markaðsrannsókn og hvernig frumkvöðullin ber sig að. En til er fjöldi vefsíða með tæki og tól sem hjálpa til við þessháttar rannsókn.
Samkvæmt upplýsingum frá prófessor Philip Kotler er markaðssetning notuð til að bera kennsl á þarfir og langanir viðskiptavina og til að fullnægja þeim, helst betur en samkeppnisaðilar gera.
Helstu markmið með markaðssetningu eru:
- laða að nýja viðskiptavini með því að lofa yfirburða verðgildi fyrir peningana.
- halda og fjölga viðskiptavinum með því að veita fulla ánægju.
Ferli markaðsfærslu
Eina leiðin til að ná þessu markmiði er að skapa fyrirtæki sínu, samkeppnisforskot. Með öðrum orðum, það verður að sannfæra kaupendum og mögulegum kaupendum, um að það sem þú býður fullnægja þörfum þeirra og óskum betur en það sem önnur fyrirtæki geta.
Þörf, löngun, eftirspurn
Með Þörf er átt við vandamál sem neytandinn finnur fyrir og sem hann / hún leitar að lausn fyrir með því að reyna að njóta góðs af sérstökum kosti vöru eða þjónustu (borða, klæða sig, hreyfa sig, eiga samskipti…).
Með Löngun er átt við hvernig neytandinn velur að fullnægja þörf sinni löngun hefur áhrif á umhverfi neytandans og fyrri reynslu.
Til dæmis getur viðskiptavinur fullnægt þörf sinni fyrir að ferðast um með því að kaupa bíl. Markaðssetning hefur áhrif á neytandann á því hvernig hann / hún velur að mæta þessari þörf sinni.
Með Eftirspurn er átt við hina efnahagslegu ósk sem lýsir löngun, vilja og getu neytanda til að greiða verð fyrir tiltekna vöru eða þjónustu. Að skynja eftirspurn neytenda er mikilvægt fyrir afkomu fyrirtækis og þá afurð sem það hefur í boði.
Sum fyrirtæki telja að væntanlegir kaupendur muni einfaldlega þekkja verðmæti afurða sinna og muni því kaupa þær. Þetta skoðun fyrirtækja er fremur óraunveruleg enda er málið ekki svo einfalt. Þarfir viðskiptavinanna verður að vera kjarninn í markaðsstefnu fyrirtækisins.
- Markaðsrannsóknin
Hvað er markaðsrannsókn og hver er tilgangur hennar?
Markaðsrannsókn er safn nákvæmra upplýsinga sem miða að því að skilja betur markaðinn sem fyrirtækið vill starfa á. Sérstaklega er átt við:
– eftirspurn (hugsanlegir viðskiptavinir)
– framboð (samkeppnisaðilar)
Að spyrja sjálfa sig réttra spurninga áður en þú hefur starfsemi fyrirtækis er besta leiðin til að draga úr hættunni á slæmum árangri.
Að gera markaðsrannsóknir krefst góðrar skipulagshæfni og nákvæmni. Þetta er verkefni sem frumkvöðullinn getur gert sjálfur með því að nota tæki og tól sem er að finna á vefnum.
Tæki og tól á netinu sem nota má við markaðsrannsókn
Veldu stofnanir sem veita áreiðanlegar upplýsingar: tölfræði, stuttar skýrslur osfrv. Þú munt finna ítarlegan lista á vefsíðu NMI á Íslandi:
https://www.nmi.is/is/frumkvodlar/markadsmal
Evrópubúar geta stuðst við upplýsingar hjá Hagstofu Evrópusambandsins eða Eurostat (ec.europa.eu/eurostat), Hagstofu Íslands (https://hagstofa.is/ ) eða ýmiskonar samtök atvinnugreina til að fá áreiðanlegar upplýsingar og tölfræði.
Önnur tæki og tól á netinu sem gætu orðið að liði við að kanna hegðun viðskiptavina er að finna hjá fjölþjóðlegum fyrirtækjum eins og:
– Google Trends https://www.google.com/trends/
– Social Mention http://www.socialmention.com/
– Amazon Handmade: https://services.amazon.fr/handmade.html
Helstu skref markaðsrannsókna
Bera kennsl á þann markað sem á að vinna á og reyna að skilja þróun hans:
Markmiðið hér er að taka almenna mynd af markaðnum: stærð hans (í gildi og rúmmáli), vaxtarhraði hans, einkenni viðskiptavina.
🡺 Hverja er að finna á markaðnum?
- Kaupendur: þeir borga fyrir en neyta ekki endilega vörunnar (t.d.: barnavara)
- Neytendur / notendur: þeir sem neyta eða endanlegir notendur vörunnar.
- Áhrifavaldar, sem hafa bein áhrif á söluna (t.d. bloggarar).
🡺 Hver er mögulegur markaður fyrir afurðina?
Það er til dæmis sá fjöldi viðskiptavina sem eru líklegir til að kaupa afurðina:
- Viðskiptavinir keppinautanna sem ætti að reyna að fá í viðskipti til fyrirtækisins.
Fólk sem er ekki að kaupa afurðina einmitt núna en það þarf að ná til þeirra og sannfæra þá.

Heimild : pixabay
Greining á eftirspurn á markaði: hverjir eru mögulegir viðskiptavinir?
Að greina eftirspurnina hjálpar til við að bera kennsl á mögulega viðskiptavini fyrirtækisins. Það eru ekki allir á markaðssvæðinu taldir sem væntanlegir viðskiptavinir og því er mikilvægt að fá nákvæma mynd af viðskiptavinum fyrirtækisins sem á í hlut.
🡺 Lýðfræðilegar upplýsingar: kyn, aldur, tekjuhópur, félagsleg staða.
🡺 Hegðun á markaði: greina ástæðurnar fyrir því að viðskiptavinir velja frekar að kaupa eina vöru frekar en aðra: hvenær kaupa þeir eða nota vöruna? Hverjir eru hvatar þeirra eða hindranir?
Síðan þarf að flokka viðskiptavinina í Geira til þess að til þess að hafa í brennidepli „markhóp“ fyrirtækisins. Sem sé að velja hvaða viðskiptavini á að leggja áherslu á þegar afurðin fer fyrst á markað. Að beina athyglinni að viðskiptavinum fyrirtækisins mun vera hjálplegat þegar velja á aðferð við markaðsfærslu.
Greina eftirspurn á markaði: hverjir eru samkeppnisaðilarnir?
🡺 Samkeppnin: Bein samkeppni (þeir sem selja samskonar afurðir) og Óbein samkeppni (þeir sem selja öðruvísi afurð en sem uppfyllir samt þarfir sömu viðskiptavina)
🡺Framboð samkeppnisaðila: Hvaða afurðir selja þeir? Á hvaða verðir? Hvernig selja þeir? Hverjum selja þeir? Í hvernig samskiptum eiga þeir?
🡺 Dreifingarleiðir samkeppnisaðila: sérstakar verslanir, á vefnum, markaðir, verslunarmiðstöðvar o.s.frv.
Gott ráð: farið yfir viðbrögð viðskiptavina og samfélagsmiðla til að komast að því hvað þeim finnst um keppinauta þína.
Finndu hindranirnar sem geta komið í veg fyrir að þú komir á markaðinn
🡺 Efnahagslegar hindranir : Kostnaður við aðgengi að dreifileiðum og sendingarkostnaður. Getur fyrirtækið boðið samkeppnishæft verð?, o.s.frv…
🡺 Landfræðilegar hindranir : (svo sem fjarlægð) o.s.frv…
🡺 Aðgengi að markaðinum á netinu : Athuga reglugerðirnar sem varða sölu, greiðslur, flutninga, o.s.frv…
Eru þessar hindranir alvarlegar fyrir markað fyrirtækisins? Ef svo er, hvernig má sigrast á þeim?
Myndbönd á er að finna á eftirfarandi slóðum: þau hjálpleg til að fá meiri þekkingu um grundvallaratriði markaðssetningar og markaðsrannsókna oft á gagnvirkan hátt:
| Hvað eru markaðsmál ? | https://www.youtube.com/watch?v=Mz8Gov0eivM |
| Kjarni markaðsmálanna | https://www.youtube.com/watch?v=qHYykganJLI |
| Markaðsmál á Mannamáli | https://www.youtube.com/watch?v=SYQRiPbN3Z0 |
| Understanding marketing basics for businesses (EN) | https://www.youtube.com/watch?v=ZYw52nVZl_0 |
| Tips for conducting market research (EN) | https://www.youtube.com/watch?v=6u8m-mA2-uk |
