-
Áfangi 2: Markaðsrannsókn
Þessi áfangi miðar að því að skýra hugmyndina um markað og viðskipti fyrir þeim sem ætla að stunda þar viðskipti. Einkenni markaðs og viðskipta og munurinn á þeim hugtökum eru nefnd til sögunnar og einnig hvernig þessir þættir bæta hvorn annan upp. Þrátt fyrir að það virðist sem þessi tvö hugtök (markaður og viðskipti) skarist, mun áfanginn leggja áherslu á að hugtökin endurspegla lykilatriði í frumkvöðlaferlinu. Viðskiptaáætlunin sem allir frumkvöðlar þurfa að gera, marka viðskiptastefnu ans, markaðsáætlunin segir til um hvernig á að fara með afurð á markaðinn. Þessar tvær áætlanir styðja hver við aðra og báðar styðja frumkvöðulinn á ferð hans í frumkvöðlastarfi.
3-
MarkaðurinnLecture1.1
-
VIÐSKIPTAÁÆTLUNLecture1.2
-
Mat á námsefni – Markaðsrannsókn 10 questionsQuiz1.1
-
VIÐSKIPTAÁÆTLUN
Viðskiptaáætlunin er sá grundvöllur sem stefna fyrirtækisins byggir á hvort sem um er að ræða lítið eða stórt fyrirtæki. Góð viðskiptaáætlun gefur raunhæfa sýn á fyrirtækið og þau grunnatriði sem viðskipti fyrirtækisins byggja á.
Hvað er viðskiptaáætlun?
Líf okkar er langt ferðalag þar sem við mætum þeim markmiðum og fyrirætlunum sem við höfum sett okkur. Á þessari ferð munum við reyna að ná markmiðum okkar (innri þáttum) og síðan vonast eftir ákveðinni „heppni“ sem hjálpar til (ytri þættir) á leið okkar. Við lítum á viðskipti á sama hátt. Það er mikilvægt að hafa ferðaáætlun til að ná fyrirhuguðum markmiðum. Án þessháttar áætlunar geta fyrirætlanir okkar mistekist og það getur leitt til að lífsgæði okkar og ef til vill annarra í kringum okkur, verða minni en ella. Þess vegna þurfum við að hafa „Viðskiptaáætlun“.
Við getum því skilgreint viðskiptaáæltun sem safn skjala sem stjórnendur fyrirtækisins hafa útbúið til að draga saman rekstrarleg og fjárhagsleg markmið þess í náinni framtíð (venjulega eitt til þrjú ár) og sýna hvernig þeim verður náð. Það þjónar sem „teikning“ sem

virkar eins og leiðbeiningar um hvaða stefnu fyrirtækið tekur og hvaða áætlanir eru í gangi sem þó er hægt að breyta ef aðstæður breytast og ný tækifæri og / eða ógnanir koma fram. Þegar þessháttar skjal er lagt fyrir utanaðkomandi eins og lánveitendur eða væntanlega fjárfesta, eru upplýsingar um fortíð, nútíð og spá um árangur fyrirtækisins hluti af þessari stefnu. Viðskiptaáætlun birtir einnig áætlaðan efnahagsreikning, rekstrarreikning og sjóðsstreymisyfirlit. Það er gert til að sýna fram á hvernig fjármögnun sem leitast er er við að ná, muni hafa áhrif á fjárhagsstöðu fyrirtækisins.[1]
Viðskiptaáætlunin mun styðja frumkvöðulinn í þeirri vegferð sem hann hefur eða ætlar að taka sér fyrir hendur. Þar endurspeglast ýmsir lykilþættir rakstrarins svo sem hvaða vara og/eða þjónusta hefur fyrirtækið í boði, hvaða aðferðir eru notaðar til að koma afurðum til viðskiptavina. Hvernig á að skipuleggja reksturinn. Hvernig á að fjármagna fyrirtækið. Hverjir eru keppinautarnir og hverjir eru lykilaðilar á markaði og hvernig á að leysa ýmis tiltekin vandamál sem upp geta komið.
Viðskiptaáætlun og markaðsáætlun…. Hver er munurinn?
Við ræddum um í fyrstu kennslustund um markaðinn og í áfanganum „Markaðssetning og sala“ lærðum við hvernig á að gera markaðsáætlun. Hægt er að spyrja: “Ef markaðsáætlunin er mín lýsir stefnu fyrirtækisins til að auka sölu, hvað gerir það frábrugðið viðskiptaáætluninni? Af hverju þarf að skipuleggja markmiðin tvisvar, ef það sem ég vil er að selja svo að fyrirtæki mitt geti gengið áfram ? Er ég að tvítaka verkefni og fyrirhöfn? “
Tökum það skref fyrir skref. Ef markaðsáætlunin segir til um hvernig á að selja vörur og þjónustu, þá á viðskiptaáætlunin segja til um hvernig skuli þróa viðskiptamarkmiðin. Viðskiptahugmyndin fjallar ekki bara um getu þína til að selja vörur þínar og þjónustu. Það er ekki nóg að bara skipuleggja söluna heldur þarf líka að skipuleggja hvernig vörurnar eru framleiddar. Einnig tekur viðskiptaáæltunin á því hvað varðar starfsfólkið sem reksturinn þarfnast, hvert tekjumódelið þitt verður (umfram sölu), hvernig þú nærð til viðskiptavinanna o.s.frv.
Til að skýra málið frekar eru þetta mikilvægasti munurinn á markaðsáætlun og viðskiptaáætlun:

Uppbygging viðskiptaáæltunar.
Viðskiptaáætlunin er skjal sem samanstendur af þeim hugsunum og hugmyndum sem ætlað er að byggja viðskiptin á. Þar að auki inniheldur áætlunin markmið okkar og fyrirætlanir sem við viljum ná fram. Þar að auki þarf viðskiptaáætlun að skýra hvernig við getum nýtt þær eignir og þekkingu sem við höfum til að ná markmiðum okkar. Einnig er þar mat á aðgerða áætlun fyrirtækisins og hvernig á að nýta áunna þekkingu og færni til að nota í viðskiptaáætlanir framtíðarinnar.
Allir þessir þættir eru með í því skjali sem áætlað er að nýta við framkvæmdir í fyrirtækinu til langs tíma (venjulega fimm ár). Til þess að gera þessa stefnumótun fyrir fyrirtækið má fá fagaðila til að hjálpa við að skilgreina viðskiptaáætlunina. En mundu, þú ert sá sem best þekkir fyrirtækið og ættir því að leiða starf við gerð viðskiptaáætlunarinnar.
Það sem hér hefur komið fram lýsir því að frumkvöðullin hefur marga valkosti við gerð viðskiptaáætlunar. Hann þarf því að taka virka þátt í gerð hennar. Eftirfarandi mynd inniheldur sex þætti sem byggja upp viðskiptaáætlun.

Striginn (Canvas)
Við höldum oft að það að skrifa stóra pappíra um stefnumótun og áætlangerð, sé aðeins gert í stórum fyrirtækjum og lítil fyrirtæki fremur lítinn rekstur, þurfi ekki á slíkum aðferðum að halda. En ekkert gæti verið fjær sannleikanum!
Hins vegar er það þannig að lítil fyrirtæki þurfa líka módel sem eru sniðin að veruleika þeirra. Mjög áhugaverður valkostur sem getur hjálpað við að gera viðskiptaáætlun fyrir fyrirtæki frumkvöðulsins „Striga“ aðferðafræðin.
Striga aðferðafræðin er tæki til að greina og útbúa viðskiptamódel á einfaldan hátt. Það er notað til að fara frá „hugmynd“ í viðskiptamódel. Hér er því aðferð sem gerir frumkvöðlinum kleift að greina mismunandi viðskiptahugmyndir og skilgreina þannig sitt eigið módel.
Striga líkanið, sem byggir á Striga aðferðinni, hefur þrjá kosti fram yfir aðrar aðferðir við hönnun viðskiptamódela:
- Bættur skilningur: Striga líkanið sjónrænt yfirlit, sem hjálpar við að sjá líkanið betur og hvetur til sköpunar.
- Víkkar sjóndeildarhringinn: Líkanið gerir kleift að sjá viðskiptin frá mismunandi sjónarhornum: svo sem frá markaði, viðskiptavinum, lykilaðilum, eignastöðu …
- Stefnumótandi greining: Hægt er að skoða alla þætti líkansins á einu blaði.
Líkanið er byggt upp af 9 þáttum sem byggja upp viðskiptamódelið. Eftirfarandi mynd sýnir níu þætti líkansins og röðina sem sýnir hvernig það er byggt upp.

- Lykilsamstarfsaðilar: Til þess að bera kennsl á viðskiptavin okkar verðum við að setja okkur í spor þeirra og greina hvað þeim finnst, hver eru vandamál þeirra eru og ávinninginn sem vara okkar / þjónusta getur haft í för með sér fyrir þá.
- Varan/verð: Það er hornsteinn alls viðskiptamódelsins. Að leggja áherslu á vöruna og virði hennar og þar með samkeppnisforskotið er ástæðan fyrir því að viðskiptavinurinn mun kaupa af okkur en ekki frá einhverjum öðrum. Þetta felur í sér það sem gerir vöru okkar / þjónustu öðruvísi og nýstárlega.
- Dreifileiðir: Þegar við höfum skilgreint viðskiptavini okkar og skoðað vöruna og virði hennar, reynum við að ná til þeirra með vöruval okkar. Ef þeir þekkja okkur ekki, munu þeir líklega ekki kaupa af okkur. Hér munum við skilgreina dreifileiðir fyrir vöruna eða þjónustuna.
- Tengsl við viðskiptavini: Við verðum að eiga góð samskipti við viðskiptavini okkar og fylgjast með þeim. Þeir eru í brennidepli hjá okkur, svo það að vita hvernig á að skilgreina sambandið sem við ætlum að eiga við hvern markhóp er grundvallaratriði fyrir velgengni fyrirtækisins.
- Tekjur: Til að fyrirtæki sé arðbært og lífvænlegt á markaðnum verðum við að hugsa um hvernig á að afla tekna. Með öðrum orðum, hvaðan ætlum við að fá veltuna?
- Lykilauðlindir: Að vita hvaða auðlindir við höfum og hvað við verðum að hafa til að gera viðskiptastarfsemi okkar mögulega er lykilatriði þegar viðskiptaáætlun er gerð. Við verðum að vera varkár og skynsöm þegar við skilgreinum þessar auðlindir. Við verðum alltaf að hugsa um hvernig best sé að finna bestu meðferð þeirra, með öðrum orðum, reyna að ná sem mestri framleiðni með lágmarkskostnaði.
- Lykilstarfsemi: Til að útbúa tilboð sem við viljum bjóða viðskiptavinum okkar er ákveðin starfsemi nauðsynleg til að undirbúa vöruna áður en hún kemur á markað. Með öðrum orðum, hér hugsum við um kjarnaviðskipti okkar, hvað við munum gera í starfi okkar frá degi til dags.
- Lykilsamstarfsaðilar: Til þess að stunda viðskipti er nauðsynlegt að eiga bandamenn. Þessir bandamenn geta verið samstarfsaðilar eða samstarfsmenn og birgjar.
- Kostnaður: Augljóslega hafa innviðirnir kostnað eitthvað og það verðum að greiða fyrir en um leið hagræða. Við verðum að skilgreina hver forgangsröðunin er og hver grunnkostnaður viðskiptanna er.
Við höfum útbúið módel sem inniheldur spurningar sem þú getur notað til að skilgreina strigalíkanið þitt:

Hér að neðan er að finna líkan af viðskiptamódeli byggt á strigaaðferð:

Við leggjum til nokkrar aðferðir sem þú getur notað til að þróa mismunandi skref viðskiptaáætlunarinnar. Við sýnum nokkra hlekki sem hjálpa þér að skilja betur hvernig á að nota þær:
| AÐFERÐIR | Í STUTTU MÁLI | MEIRI UPPLÝSINGAR |
| TÓM MAPPA | Það gerir kleift að þekkja eiginleika hvers viðskiptavinar fyrir sig og skilja umhverfið sem þeir eiga í samskipti við, raunverulegar þarfir þeirra og hvernig fyrirtækið getur boðið viðeigandi lausn. | Skoðaðu myndbandið |
| SWOT GREINING | SWOT greining (styrkleikar, veikleikar, tækifæri og ógn) er tæki sem gerir frumkvöðlinum kleift að meta raunveruleika í umhverfi og innan fyrirtækisins og auðveldar ákvarðanatöku í framtíðin. | Skoðaðu myndbandið |
| SMART MARKMIÐ | Þessi tækni hjálpar við að skilgreina markmið viðskiptaáætlunarinnar. | Skoðaðu myndbandið |
