-
Áfangi 2: Markaðsrannsókn
Þessi áfangi miðar að því að skýra hugmyndina um markað og viðskipti fyrir þeim sem ætla að stunda þar viðskipti. Einkenni markaðs og viðskipta og munurinn á þeim hugtökum eru nefnd til sögunnar og einnig hvernig þessir þættir bæta hvorn annan upp. Þrátt fyrir að það virðist sem þessi tvö hugtök (markaður og viðskipti) skarist, mun áfanginn leggja áherslu á að hugtökin endurspegla lykilatriði í frumkvöðlaferlinu. Viðskiptaáætlunin sem allir frumkvöðlar þurfa að gera, marka viðskiptastefnu ans, markaðsáætlunin segir til um hvernig á að fara með afurð á markaðinn. Þessar tvær áætlanir styðja hver við aðra og báðar styðja frumkvöðulinn á ferð hans í frumkvöðlastarfi.
3-
MarkaðurinnLecture1.1
-
VIÐSKIPTAÁÆTLUNLecture1.2
-
Mat á námsefni – Markaðsrannsókn 10 questionsQuiz1.1
-
Markaðurinn
Meðal helstu atriða sem frumkvöðull verður að þekkja er „markaðurinn“. Með öðrum orðum, staðurinn þar sem þú ætlar að bjóða og selja vörur þínar og þjónustu. Í þessari kennslustund munum við útskýra hvað markaðurinn er, hverjir eru þættir hans og hvernig á að vinna innan hans.
Manstu síðast þegar þú heimsóttir markað? Fórstu ef til vill í gær að kaupa þér ávexti eða brauð. Markaður er sá staður þar sem þú getur keypt vörur eða greitt fyrir ákveðna faglega þjónustu.
Á markaðnum er líka að finna fólk sem selur allskonar vörur. Verðin eru mismunandi og fólkið sem er að versla á markaðnum getur ákveðið að kaupa af fjölbreyttu framboði markaðarins. Markaðir geta verið litlir staðbundnir, opnir á hverjum degi eða í hverri viku. Þá eru til markaðir sem opnir eru á tilteknum tímum.

Markaður er ekki bara verslun eða verslanir eins og myndin sýnir. Markaður hefur víðari skírskotun og á við um ýmiskonar viðskipti sem eiga sér stað milli einstaklinga og/eða lögaðila. Þessi viðskipti eiga sér stað á ákveðnu svæði eða vettvangi.
Heimild: Illustrator: Clare Owen for Cooking light magazine
Öll þessi einkenni og sum önnur eru þau sömu sem hjálpa okkur að skilgreina hvað markaðurinn er fyrir frumkvöðul.
Skilgreining: Markaður er raunverulegur eða umhverfi þar sem eftirspurn og framboð á sér stað. Þar mætast kaupendur og seljendur og eiga með sér samskipti, beint eða í gegnum milliliði. Þetta í því skyni að skiptast á vörum, þjónustu eða gera með sér samninga fyrir peninga eða í gegnum vöruskipti.
Þegar þú sem frumkvöðull ert að byrja á verkefninu þínu, er mikilvægt að vita hver markaður þinn er: hvar þú ætlar að selja afurðir þínar, hvernig þú ætlar að selja þær, á hvaða verði þú ætlar að selja og hverjum þú ætla að selja. Að auki er mikilvægt að þú vitir hverjir eru að selja sömu vöru og þú og hvernig á að aðgreina þig frá þeim svo að vörur þínar eða þjónusta séu sérstakar og að samkeppnisstaða þeirra sé sterk.

Hvaða atriði á markaðinum eru áberandi?
Til þess að vita í smáatriðum meira um markaðinn sem þú ert eða ætlar að vinna á, er fyrsta skrefið að vita hverjir eru eiginleikar markaðarins. Við getum skilgreint markaðinn sem atburðarás þar sem hver þátttakandi táknar persónu. Seljendur og kaupendur, vörur, verð, tilboð og eftirspurn leika þar hlutverk.
Þessi mynd dregur saman markaðsþættina.

Markaðsþættirnir. Heimild: W@W verkefnið
Markaðsþættirnir standa saman af Verði / Product sem Seljandinn / Seller, selur fyrir ákveðið Verð / Price til Kaupanda / Buyer til þess að mæta þörfum þessa Kaupanda (Supply) sem er tilbúinn til að kaupa þá afurð sem hann óskar eftir (Demand).
Allir þessir markaðsþættir eru mikilvægir en þeir tveir þættir sem hafa meiri áhrif á hreyfingar á markaði en það eru Framboð og Eftirspurn.
Framboð er fjöldi eða umfang afurða sem framleiðendur eru tilbúnir að selja miðað við vissar aðstæður á markaði. Ólíkt Framboði virkar Eftirspurn frá sjónarhorni kaupanda eða neytanda en ekki framleiðanda. Eftirspurn er því sá fjöldi eða umfang afurðar sem kaupandinn er viljugur að kaupa miðað við það verð sem boðið er.
Verðlagning
Ein mikilvægasta áskorunin fyrir þig sem frumkvöðull er að ákveða verð á afurðunum þínum. Þegar þú hefur hugsað um að hefja rekstur, sérðu að það er erfitt að ákveða hvernig á að selja ákveðna vöru eða þjónustu.
Það eru margar leiðir til að reikna söluverð vöru eða þjónustu og margir þættir sem hafa áhrif á lokaverð hennar. Til að reikna endanlegt söluverð vöru eða þjónustu skalt þú leggja áherslu á þessi tvö hugtök:
- Kostnaður við framleiðslu á vöru eða þjónustu: Hér verður þú að reikna út allt sem kostar þig að framleiða vöru: hráefni sem þú notar, vinnuafl (þ.e. tíma þinn og annarra starfsmanna), rafmagn og birgðir hráefna eða hliðstætt og leiga húsnæðisins þar sem framleiðsla á sér stað. Einnig kostnaðurinn af umbúðum (merkimiðum, umbúðum o.s.frv.) og að lokum öllum þeim sköttum falla á reksturinn.
- Hagnaður sem þú villt að verði af afurðinni. Þegar búið er að reikna kostnaðinn, þarftu að nota hlutfallið sem þú villt að myndi hagnað og bæta því við verðið. Ekki gleyma að þegar um er að ræða framleiðslu á mismunandi afurðum samtímis þarf að takt tillit til þess að kostnaður við mismunandi vörur er mismunandi.

Fyrir utan ofangreint dæmi eru aðrar breytur sem geta haft áhrif á endanlegt söluverð vörunnar.
- Söluverð keppinauta þinna. Ef þú setur hærra verð án þess að auka verðmæti vörunnar mun salan líklegast minnka.
- Eitthvað sem við getum kallað sálrænt söluverð: Ef verðið er t.d. 50 evrur er betra að verðleggja vöruna á 49,95. Jafnvel þó það sé aðeins 5 sent, þá lítur verðið út fyrir að vera vel undir 50, svo það virðist ódýrara.
- Ímynd vörunnar. að verðleggja verðið frekar hátt hefur verið áhrif á ímynd vörunnar, þar sem fólk mun skynja hana sem sérstaka og búa yfir gæðum umfram aðrar svipaðar vörur.
- Afsláttur af raunverulegu verði. Til dæmis með árstíðarvöru eða vegna sérstakrar tegundar vöru kann að vera mikilvægt að halda verði í lágmarki til að auðvelda innkaup viðskiptavina.
Samkeppni
Í hvert skipti sem við heimsækjum markaðinn mætum við mismunandi seljendur. Sumir þeirra bjóða okkur svipaðar, ef ekki sömu vörur. Og við ákveðum að kaupa af einhverjum þeirra, með hliðsjón af mismunandi þáttum eins og verði, gæðum vöru eða einfaldlega að okkur líkar betur við umbúðirnar. Þetta er SAMKEPPNI

Það að bera kennsl á samkeppnina fyrirtæki þitt mætir er mikilvægt. Það er líka mjög mikilvægt að þú þekkir þá aðila sem eru í samkeppni við þig. Til að gera þetta mögulegt verðum við að spyrja okkur margra spurninga sem hjálpa okkur við að kynnast samkeppnisaðilum okkar:
- Hverjir eru þeir.
- Hvað hafa þeir að bjóða.
- Hvar bjóða þeir afurðir sínar.
- Hvernig selja þeir afurðirnar.
- Hvenær selja þeir afurðirnar.
- Hvert er álit þriðja aðila á samkeppnisaðilana (viðskiptavinir, birgjar, aðrir samkeppnisaðilar, o.s.frv.).
