-
Áfangi 3: Hvað þarf til að vera KONA í viðskiptum. Sjónarmið kynja í stjórnun, viðskiptum og samstarfi.
3-
Kynjaáhrif í viðskiptatengslumLecture1.1
-
Greina hvað vantar í viðskiptaumhverfinu og rayna að bæta fyrir það.Lecture1.2
-
Hvað þarf til að vera KONA í viðskiptum – Mat á námsefni 10 questionsFinalQuiz1.1
-
Kynjaáhrif í viðskiptatengslum

Með jafnrétti kynja er átt við jafnan rétt, ábyrgð og tækifæri kvenna og karla og stúlkna og drengja. Jafnrétti kynjanna felur í sér að hagsmunir, þarfir og forgangsröðun kvenna og karla er höfð til hliðsjónar við skipulagningu, ákvarðanatöku, framkvæmd og eftirfylgni allra aðgerða (https://www.un.org/womenwatch).
Kyn er skilgreint sem félagsleg vídd sem stafar af líffræðilegum mismun á milli karla og kvenna.

Með því er átt við hvernig fólk skynjar, hugsar um og talar um karla og konur, en ekki endilega eins og karlar og konur eru. Hvernig konur hugsa um karla og öfugt, hvernig talað við aðra; hvernig karlar og konur grínast með hitt kynið og hvernig þau koma fram við hitt kynið, eða kynlausa einstaklinga.
Það er mikilvægt að skilja að hugmyndir um „hvað þarf til að vera kona / karl“ koma ekki frá einu kyni til annars; þetta er notað af öllum aðilum í samfélaginu. Konur hafa skoðanir á konum, karlar hafa skoðanir á körlum. Því meiri útbreiðsla sem ákveðin skoðun fær, því minna virðist hún vera persónuleg og þá höfum við tilhneigingu til að líta á hana sem staðreynd.
Við þurfum að skilja að það eru til tvennskonar hindranir þegar kemur að því „hvað þarf til að vera kona í viðskiptum“: hvað konum finnst um eigin færni og getu og hvað öðrum í umhverfinu finnst um þær. Frumkvöðlastarf snýst um að taka ákvarðanir sem byggir á því hvaða forsendur liggja til grundvallar ákvarðanatöku: konum sem eru frumkvöðlum og öðrum eins og viðskiptavinum þeirra, samstarfsfólki og fjárfestum..
Þessi kennslustund fjallar um að ræða mismunandi atrið sem varða kynin og tengjast viðskiptaþróun. Við munum spyrja okkur spurninga sem snúa frumkvöðlastarfinu á hvolf og leita að hlutum sem eiga við konur en ekki karla þegar við nálgumst viðskiptatengda ákvörðun.
Byrjaðu kennslustundina með hópumræðum / skoðun hvers og eins um hvað þeim finnst um kynjamál og jafnrétti í viðskiptum. Þetta er mikilvægt til að meta breytingar á vitund þeirra og þekkingu í lok námskeiðsins.
Mynd: https://uxdesign.cc/the-5-ws-and-1-h-for-ux-writing- 9a5786a80b95
Það eru fleiri geirar í hverju samfélagi sem fyrirtæki eiga í samskiptum við: opinber geiri, fyrirtæki,
og ýmiskonar félagsstarfsemi.
Opinber geiri
Þar sem konur og karlar hafa sömu réttindi og skyldur samkvæmt lögum er það skylda opinberra embættismenn og miða að því að koma í veg fyrir mismununar áhrif sem eiga uppruna sinn í samfélagskerfum eins og meðal annars á vinnumarkaði og félagslegri og efnahagslegri þróun. Í mörgum samfélögum er þessi mál í óhag fyrir konur og karlar njóta frekar réttinda en konur. Með því að taka á sig staðalímyndir af „kvenlegri viðkvæmni“ og „annmörkum“ sem eru ekki byggðar á vísindalegum og siðferðilegum mannlegum jafnréttisástæðum, en sem hjálpa takmörkuðum hópi í samfélaginu, að halda eftir krafti og auðlindum.
Þar af leiðandi ber opinberum embættismönnum skylda til að bera kennsl á óréttlátar staðalímyndir og misrétti sem og ástæðulausar skoðanir og fordóma varðandi kynjaeiginleika sem leitast við að binda konur og karla sérstökum samfélagslegum hlutverkum. Með öðrum orðum, það er alltaf til í stefnumótum hjá stjórnvöldum, markmið um að vinna gegn kynjamisrétti. Víða eru áætlanir til og fé er úthlutað til kynningar á konum sem frumkvöðlum og með rekstur nýsköpunarfyrirtækja.
Aðferðir sem stjórna aðgangi kvenna að viðfangsenfum sem eru jafnan ríkjandi eru til og teljast vera jákvæð mismunun. En þá er átt við mismun í reglum sem gerir konum kleift að fara í ákveðið ferli á betri hátt en þegar ferlið er enn opið fyrir alla. Má í þessu samhengi ræða um kvóta sem fyrirvara um að ákveðinn fjöldi tækifæra er til staðar fyrir fulltrúa ákveðinna hópa.
Það eru ýmsar leiðir til að stjórna stuðningi við athafnakonur Ein þeirra er að leggja sérstaka áherslu á konur (til dæmis með námskeiðahaldi eins og þetta, sérstakir sjóðir og áætlanir fyrir konur). Önnur leið er að krefja hagaðila eins og stærri fyrirtæki og stofnanir, að sýna jafnrétti í starfi. Sennilega er jafnlaunastefnan dæmi um það.
Hópumræða eða hugleiðingar fyrir einstaklinga: Hjálpar jákvæð mismunun og kvóti konum að byrja og stunda atvinnurekstur? Hvaða leið til að stuðla að jafnrétti er skilvirkt?

Mynd: https://www.medicaleconomics.com/view/gender-discrimination-medicine-prevalent-form-lower-pay-inappropriate-conduct-survey-finds
Athugasemd fyrir leibeinandann: Aðalatriðið í hópumræðu er að varpa ljósi á margskonar túlkanir og stundum umdeildar kynjamyndunar í almennri umræðu. Þátttakenur mættu í smærri hópum ræða um, hugleiðingar sínar um mismunandi aðstæður eins og:
– Kona tekur þátt í samkeppni meðal nýrköpunarfyrirtækja. Hún er ein en aðrir þátttakendur eru karlar. Ætti hún að fá aukastig „fyrir hugrekki“?
Mikilvægt er að ræða hvernig vitneskjan um jákvæða mismunun hefur áhrif á konur sem fara inn í rekstur fyrirtækis og hvernig líður þeim með það.
Viðhorf í einkageiranum
Að taka þátt í viðskiptum skapar oft ný samskipti í lífi kvenna þar sem þær hitta einstaklinga og fyrirtæki sem hagaðila: samkeppnisaðila, samstarfsaðila eða viðskiptavini. Geta til að sjá möguleika, ógnanir og áskoranir í þessum samskiptum er hluti af lærdómsferli frumkvöðla. Til dæmis virðast karlar vera árásargjarnari við fjáröflun en konur taka meiri „reiknaða áhættu“ – hvort sem það er gott eða vont.
Vera má að það komi fyrir að fólk tekur konu sem er að stofna fyrirtæki kannski ekki alvarlega í fyrstu. Í nútíma samfélagi getum við í mörgum tilfellum séð að konur eru dæmdar af útliti sínu og það hefur bæði haft áhrif á skynjun og væntingar fólks í samfélaginu.

Mynd: https://thestoryexchange.org/16-popular-small-business-ideas-women-entrepreneurs/
Umræður í hópi og hugleiðingar fyrir einstaklinga: Hvað finnst ykkur um að konur klæði sig meira eins og karlar gera?
Þrátt fyrir þá staðreynd að stór fjöldi kvenna rekur fyrirtæki er stuðningur við þessi fyrirtæki frekar lítill. Einföld algeng athugun leiðir í ljós að viðskiptavinir á mörgum sviðum kjósa frekar að leita til karla en kvenna.
Þessi viðhorf hafa í gegnum tíðina skapað mótaðgerðir og fjöldi kvenna sem eru og áhættufjárfestar, eða viðskiptaenglar, hafa stígið fram. Þessi tengslanet og fyrirtæki eru uppspretta þekkingar og vaxtar á sama tíma og þau sýna skýran hagnaðarmiðaða meðvitund um forskot kvenna þegar kemur að þróun viðskipta. Þau bera kennsl á undirfjármagnaða frumkvöðla meðal kvenna og viðskiptamódel sem hafa möguleika á umfangsmikla verðmætasköpun og samfélagslega ábyrgð. Með öðrum orðum, konur þróa oft fyrirtæki sem fást við viðfangsefni sem þær þekkja mjög vel og hafa þróað í gegnum samfélagsmiðla.
Áhættufjármögnun í fyrirtækjum sem konur hafa stofnað
Fjármögnun í fjölda á árunum 2010 og 2015

Sjópnarhorn sjálfseignastofnana.
Fyrir margar konur er upphaf viðskipta þeirra spurning um að bæta formlegum karakter við frítímaáhugann, taka við fjölskyldumálum eða þróa viðbrögð við brýnni þörf á staðnum. Engu að síður eru þessar aðgerðir oft tengdar staðbundnum félagsnetum og fara eftir þeim til að byrja vel. Sveitarfélög sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni geta oft veitt upphafsvettvang, stundum sem félagsleg fyrirtæki sem eru meira og minna formleg.
Til viðbótar við fjármögnun og skipulag fyrirtækisins er mikilvægt mál sem hefur áhrif á frumkvöðlastarf kvenna og alla ákvarðanatöku varðandi reksturinn. Það er að segja um sjálfsálit, sálrænn stuðningur og þrautseigju sem og viðbrögð jafningja. Um þetta fjalla sjálfseignarstofnanir einkum vegna hefðbundins tilgangs þeirra sem er að skapa betra samfélag og gagnkvæman stuðning.
Sjálfseignastofnanir sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni byggja á því markmiði að vinna að betri lífsgæðum og góðum vilja. Þær veita félagslegaþjónustu, umhyggju fyrir fötluðum, leysa félagsleg málefni, stuðla að umhverfisvernd, íþróttastarf, menningu og samfélagsþróun o.s.frv. Þær vinna ekki að því að ávaxta fjárfestingar. Í mismunandi löngum á búast við að sjálfseignastofnanir vinni á misjafnan hátt og hafi mismunandi venjur og siðferði. Til athugunar mætti vera að fá sjálfseignastofnanir til að aðstoða frumkvöðla í upphafi vegferðar sinnar og við að þróa tengslanet fyrir þessa starfsemi.
Athyglisverð rannsókn Hagstofu ESB, sýnir að karlar hafa tilhneigingu til að taka þátt í formlegu sjálfboðaliðastarfi, á meðan eru frekar í óformlegu sjálfboðaliðastarfi. Það má velta fyrir sér ástæðunum fyrir þessu. En hægt er að sjá að konur taka frekar þátt í samfélagslega stýrðri starfsemi sem er að bjóða ókeypis þjónustu. Á meðan karlar hafa í brennidepli, ágóða einstaklingsins. Stofnun sem ekki er rekin í hagnaðarskyni er vettvangur til að koma á framfæri hugmyndum um hefðbundin hlutverk karla og kvenna.
Umræður í hópi eða hugleiðingar fyrir einstakling: Eftir 2. heimsstyrjöldina var mikill áróður í Bandaríkjunum þar sem fram kom að staða kvenna ætti að vera húsmæður. Af hverju heldur þú?
Heimildir og frekari upplýsingar:
https://skemman.is/bitstream/1946/1132/1/ks_lokaritgerd_2.pdf
https://www.visir.is/g/20202019960d
https://www.visir.is/g/20202020750d
https://www.thekkingarmidstod.is/atvinna-og-menntun/nyskopun–frumkvodlar/
https://skemman.is/bitstream/1946/19029/1/MA_HR%c3%9e_lokaeintak.pdf
https://thorvald.blog.is/blog/thorvald/entry/2247729/
https://fka.is/

