-
Áfangi 6: Aukin færni. Verum viðbúin! Tækniþekking
Fyrri kennslustundin í þessum áfanga gefur yfirlit yfir helstu samfélagsmiðlana (þ.m.t. virkni þeirra og hverjir nota þá). Þá er útskýrð hugmyndin um markaðsstefnu samfélagsmiðla. Seinni kennslustundin er um góð ráð um hvernig á að kynna afurð á samfélagsmiðlum og hvaða mistök eru oft gerð í því samhengi. Samkeppni fer vaxandi á flestum mörkuðum og það endurspeglast greinilega á samfélagsmiðlum.
3-
Samfélagsmiðlar og hugtök um markaðsfærsluLecture1.1
-
Skilningur á samféagsmiðum og um kynningu á afurðurmLecture1.2
-
Aukin færni. Verum viðbúin! Tækniþekking – Mat á námsefni 4 questionsFinalQuiz1.1
-
Samfélagsmiðlar og hugtök um markaðsfærslu

Mynd: Digital Knowledge Mine (24 Apríl 2018)
Að setja afurð á markað er mikilvægur hlutur fyrir fyrirtæki enda byggir afkoma þess á að sú aðgerð takist vel. Afurð þarf að fara í gegnum mismunandi skref áður en hún að lokum kemst til viðskiptavina fyrirtækisins. Það þarf að setja fram stefnu fyrir kynningu afurðarinnar. Til þess að tryggja að „kynning afurðarinnar“ sé vel gerð þarf frumkvöðullinn að þekkja eftirspurnina eftir afurðinni og koma henni í kynni við markaðinn í gegnum samfélagsmiðla. Ef frumkvöðullinn ætlar að selja einhverja afurð (vöru eða þjónustu) getur verið góð leið að auglýsa hana í gegnum samfélagsmiðla.
Að vera með frábæra afurð er ekki lengur nóg. Það verður líka að þróa stefnu sem aðgreinir fyrirtæki frumkvöðulsins frá keppinautum hans. Hvað er það sem aðgreinir fyrirtækið frá samkeppnisaðilum og gerir það einstakt! Þetta getur verið leiðin þar sem afurðin er kynnt og hvernig skuli staðið að sölu á henni.
Hvað varðar kynningu á afurðinni, þá hefur viðskiptavinurinn stórt hlutverk. Einhver kann að hafa áhuga á afurðinni vegna þess að fyrirtækið fékk hann til að trúa því að hún sé mjög mikilvæg fyrir hann. Hver er óska viðskiptavinur fyrirtækisins ákvarðast á grundvelli markaðsrannsókna og með raunverulegum gögnum um mögulega viðskiptavini.
Fyrsta kennslustundin er stutt kynning á samfélagsmiðlum og notagildi þeirra hvað varðar markaðssetningu. Um leið er sýnt hvernig nota má samfélagsmiðla til að auka vitund og áhuga á afurðinni sem er til sölu.
Samfélagsmiðlar hafa verið hluti af daglegu lífi okkar síðan Facebook kom til sögunar árið 2012. Í kjölfar velgengni þessa voru mörg þúsund net sett upp til þess að uppfylla margvíslegar væntingar. Allt frá því að tengja saman gamla bekkjarfélaga til að deila uppskriftum, myndum af ýmsu tagi og jafnvel fatahönnun. Mikilvægt er að frumkvöðullin velji úr öllum þeim samfélagsmiðlum sem til eru, eða hver sé rétti miðillinn. Mikilvægustu samfélagsmiðlarnir eru stuttlega útskýrðir í eftirfarandi kafla. Lagt er til nota a.m.k. þrjá af þeim vinsælustu!
|
|
Stærsti samfélagsmiðillinn með yfir 2 milljarða virka notendur. Síðan er tilvalin fyrir fyrirtæki sem vilja byggja upp viðskiptasambönd. |
|
|
Twitter er hentugur miðill fyrir fyrirtæki þar sem helstu notendur eru undir 50 ára aldri og sem þurfa fylgjast með upplýsing sem eru uppfærðar mjög fljótt, eins og fréttir, tilkynningar og annað vinsæl efni. |
| Instagram er samfélagsmiðill sem er til þess getur að deila myndum og myndskeiðum úr snjallsíma. Líkt og með Facebook eða Twitter, þurfa þeir sem eru ál Instagram að hafa upplýsingar um eigandann. | |
|
|
Þetta er vettvangurinn fyrir samskipti af ýmsu tagi og oft notaður af fyrirtækjum. Hann er vel til þess fallinn að skapa traust, sýna fram á þekkingu og færni og til að leita að starfi. |
| Á þessum miðli er hægt að deila ljósmyndum og er tallinn hentugur fyrir fyrirtæki sem vilja nýta sér þá sjónrænu skírskotun sem hann getur veitt (sértæka veitingastaði, tísku, list, ferðalög og brúðkaup). Miðillinn er góður til að auka sölu því margir nota síðuna þegar skipuleggja á innkaup. | |
| YouTube | YouTube er vettvangur til að deila myndskeiðum á netinu. Það gerir notendum kleift að hlaða inn, skoða, gefa einkunn, deila, bæta á spilunarlista, tilkynna, skrifa athugasemdir við myndskeið og gerast áskrifandi að öðrum síðum á miðlinum. |
Það eru nokkrir kostir við að nota þessa samfélagsmiðla. Meðal þeirra er:
- Fjölga heimsóknum á vefsíðu fyrirtækisins
- Hagkvæmni
- Efla aðgang viðskiptavina að upplýsingum
- Auka tryggð viðskiptavina við vöruna
- Auka ánægju viðskiptavina
- Auka meðvitund viðskiptavina um afurðina og fyrirtækið
Hér að neðan getur þú smellt á hlekk sem sýnir yfirlit yfir hver þessara miðla, fjölda notenda og lýðfræðilegar upplýsingar. Þetta getur verið hentugt til að greina hvaða vettvang er best að nota í þínu tilviki.
Lýðfræðilegar upplýsingar um samfélagsmiðla |
https://sproutsocial.com/insights/new–social–media–demographics/ |
Markaðshugtak samfélagsmiðla og hvernig þeir eru “ný” leið til að selja
Markaðssetning á samfélagsmiðlum er aðferð sem nýtur meiri viðurkenningar frá degi til dags. Þar sem fólk hefur meiri tilhneigingu en áður til að kaupa vörur í gegnum samfélagsmiðla, eins og Facebook og Instagram. Þá geta samfélagsmiðlar verið bjargvættur fyrir lítil fyrirtæki. Notkun samfélagsmiðla er aðferð sem getur haft í för með sér stóran hóp gesta og leitt til viðurkenningu á vöru eða þjónustu. Fyrirtæki geta stækkað auðveldlega og fljótt með því að starfa á þessum vettvangi. Við lifum á tímum þar sem tæknin breytir því hvernig við höfum samskipti, hvernig við hugsum, hvernig við ákveðum, hvernig við hegðum okkur o.s.frv. Venjur okkar eru undir miklum áhrifum frá samfélagsmiðlum en það er markaðurinn líka.

Mynd: Rankon Tech (18. júly 2020) Byggir á My Story
Þessi kennslustund hefur það markmið benda á rétta notkun samfélagsmiðla. Eftir að hafa kynnt helstu samfélagsmiðlana er mikilvægt að einbeita sér að lykilatriðum sem taka verður tillit til þegar hafist er handa við markaðssetningu þeirrar afurðar sem fyrirtækið byggir á.
Þáttur nr. 1: Bera kennsl á hverjir viðskiptavinirnir eru og hvernig og hvar þá er að finna á netinu. Ef markhópurinn er til dæmis aðallega konur á aldrinum 20 til 35 ára, eru helstu samfélagsnetin sem ætti að einbeita sér að til að kynna afurðina eru Instagram, Facebook og Pinterest.
Þáttur nr. 2: Setja fram grípandi lýsingu fyrir markmið hvers samfélagsmiðils og tengja við markmið eigin fyrirtækis og afurða þess.
Þáttur nr. 3: Setja ákveðin markmið fyrir hvern og einn samfélagsmiðla sem á að vinna með og greina hver eru viðmið þín til að ná árangri. Markmið gæti verið að auka fjölda fylgjenda eða auka sölu eða jafnvel að fjölga vinabeiðnum og líka vinsældir fyrirtækisins.
Þáttur nr. 4: Þróaðu stefnu fyrir sérhvern samfélagsmiðlaprófíl sem vinna á með. Til dæmis, birta myndir eða jafnvel tilvitnanir og upplýsingar tvisvar í viku til að auka þátttöku og jákvæð viðhorf varðandi vörumerkið.
- Mat á þekkingu og færni
Eftir þessa kennslustund finnst mér að þekking mín á notkun á samfélagsmiðlum sé:
| Viðmið fyrir sjálfsmat | Umfang sjálfsmats | |||
|
Fullkomið |
Gott | Fullnægjandi | Mætti vera betra | |
| Kostir við að nota samfélagsmiðla við að auka sölu | ||||
| Að ná til ákveðins hóps viðskiptavina | ||||
| Ýmsir samfélagsmiðlar | ||||
| Þættir sem lýsa árangri | ||||
| Að velja ákveðna samfélagsmiðla | ||||
| Að öra viðskipti á netinu | ||||
Áhugaverð myndbönd sem geta aðstoðað við að læra á gagnvirkan hátt, en einnig til að skilja hvernig markaðssetning afurðar ásamfélagsmiðlum á sér stað. Sjá krækjurnar:
- Á þessu myndbandi er ferlið við að setja afurð á markað útskýrð á almennan hátt. Þetta hjálpar við að skilja hvað þarf að gera í upphafi kynningar á afurð.
https://www.youtube.com/watch?v=jMS5p0KwKyA
- Þetta myndband sýnir 5 mikilvæg skref til að bæta aðferð við kynningu á afurðir:
https://www.profitwell.com/blog/product-launch-strategy
- 10 aðferðir við að markaðssetja afurðir:
https://www.entrepreneur.com/article/293321
- 100 tæki til að búa til kynningar á samfélagsmiðlum:

Mynd: Evans Walsh (19. maí, 2019) fengið af WHAT Mobile
